Mér finnst æðislegt að fleiri konur komist í háttsettar stöður og sérstaklega í viðskiptalífinu... hef einhvernveginn trú á því að konur séu skynsamari með peninga...
... svona ef frá eru talin föt og meikup dót;)
|
Nýr bankastjóri Landsbankans |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | 9.10.2008 | 12:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
|
Scarlett gift kona |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | 28.9.2008 | 17:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ég er einhvernveginn alltaf rosa dugleg að blogga... eða réttara sagt hugsa meira um að blogga, þegar ég er að fara í próf. Á morgun er vika í próf og fyrir þann tíma á ég eftir að vinna 3 daga í vinnunni, læra heilan helling, pakka fullt af dóti, fljúga yfir atlantshafið (eða einhvern hluta af því) og ferðast soldið innan Danmerkur!
Ég á líka eftir að kveðja fullt af fólki því ég var að komast að því að það gæti verið að ég kæmi ekki heim til Íslands fyrr en eftir 1 og hálft ár!! Neee, held ég myndi ekki meika það. En það er allavega stefnan að fara til Flórída eða eitthvað álíka um næstu jól og svo er á planinu að fara í heimsreisu næsta sumar og eitthvað fram á haust/vetur. En ég held ég meiki nú reyndar ekki að koma ekkert heim í svona langan tíma og skelli mér örugglega á klakann eitthvað, þó ekki væri nema fyrir eina helgi!
Eftir þetta skemmtilega próf sem ég er að fara í, ætlar systir mín og fjölskylda að kíkja á kelluna í Danaveldi og taka hana með sér í tjaldferðalag um Danmörku. Ef einhver er með góða hugmynd að stað til að skoða þá eru þær vel þegnar
Við ætlum allavega í Legoland, Djurs sommerland og svo örugglega á hæsta fjall Danmerkur, Himmelbjerget!
Verslunarmannahelgin á mínum bæ er búin að vera frekar róleg, allavega ekkert útilegustand á minni. Mikill lærdómur búinn að vera og þess á milli smá subl og ein bíóferð á hina frábæru mynd, Mamma mia. Mæli eindregið með henni fyrir fólk sem fílar Abba tónlistina:) Pierce Brosnan reyndar ekki alveg að meika það en myndin er góð fyrir það!
Jæja, ætli maður þurfi ekki að halda áfram að lesa og Secret-a svo árangurinn á prófinu. Ég get, ég skal, ég vil
Bloggar | 4.8.2008 | 20:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Elska búðina á laugarveginum sem heitir Rokk og rósir. Ekki nóg með að ég fann fullt af flottum kjólum þarna inni, heldur þá var líka 50% afsláttur! Og er líklega enn ef einhver vill kaupa:D
Ég keypti mér s.s. 3 kjóla þar á laugardaginn og þar sem þetta eru notuð föt ákvað ég að skella þeim bara beint í þvottavélina svo ég gæti nú farið að nota þá undireins.... því hefði ég frekar átt að sleppa!! Einn kjólinn var mjög rauður og hefur greinilega ekki verið þveginn í þvottavél áður því honum tókst að lita bæði sjálfan sig (eitthvað hvítt skraut framaná) og svo hina tvo líka. Kjólarnir eru því engan veginn eins og þegar ég keypti þá
Laugardagskvöldið fór því í klórþvott sem tókst þó ekki en ég sé samt alveg frammá að geta notað tvo kjóla en ekki þennan rauða....
Varnaorð mín eru því til þeirra sem kaupa sér föt þarna... tékkið á hvernig má þvo fötin því yfirleitt eru þvottaleiðbeiningarnar ekki lengur á fötunum.
Jæja best að halda áfram að vinna... reikningarnir prenta sig víst ekki sjálfir!
Bloggar | 14.7.2008 | 13:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Soldið merkilegt hvernig hægt er að kaupa hrásalat í Krónunni sem á að pakka á morgun!! Pabbi fór s.s. í krónuna áðan og keypti sér hrásalat frá Stjörnusalati. Þegar heim var komið tók hann eftir dagsetningunni á umbúðunum, sem á stóð P.d. 07.07.08 og B.F. 17.07.08.
Þetta var soldið skemmtilegt að komast að. En þegar við fórum að pæla í því hvort þetta væri alltaf gert. Semsagt að merkja umbúðirnar fram í tímann er þetta náttlega bara svik gagnvart neytendum. Þetta hefur líka örugglega ekki verið pakkað í dag, á sunnudegi, heldur líklega á fimmtudaginn eða föstudaginn!! Þannig að í raun er varan við að renna út þegar við kaupum hana fyrir settan pökkunardag. Merkilegt!
Bloggar | 6.7.2008 | 18:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Einhverntímann í vetur setti ég link á myndband af lítilli stelpu sem var að syngja í "Talang 2009" sem er Britain's got talent Svía. Hún heitir Zara og ótrúlegt en satt þá vann þessi litla stelpa keppnina, frábært hjá henni. Hérna er lagið sem hún söng í úrslitunum:
Annars bara próf hjá minni á morgun, Fyns forår á Christian Firtal strax eftir próf og svo partý og grill á Ærsö á miðvikudaginn. Þar gistum við svo og fæ ég svo far með einni til Köben á fimmtudaginn þaðan sem ég flýg svo heim til Íslands. Hlakka svo til og get ekki beðið eftir að hitta alla og knúsa á Íslandinu;)
Bloggar | 9.6.2008 | 12:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Æj, þetta finnst mér bara "cruel". Það er nú ekki oft sem Ísbirnir koma til landsins og að mér skilst var hann ekki að ógna neinum. Og eins og stendur í einni fréttinni eru Ísbirnir friðaðir á Íslandi.
Ég spyr því, var ekki óþarfi að drepa dýrið?
.... hefði verið gaman að kíkja á það á Íslandi
|
Einmana og villtur hvítabjörn |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | 3.6.2008 | 18:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
Frábært lag, frábærir söngvarar og betri maðurinn vann:)
Bloggar | 28.5.2008 | 22:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Það er sko alltaf nóg að gera í Árósum....
Við fórum út að borða og fengum okkur kokteila sem kostuðu bara 39 og 49 dkk!!
Svo fórum við á bar þar sem voru aðeins 10 mín eftir af "happy hour" tilboðinu... þannig við skelltum okkur á 2 bjóra á mann
Það var AÐ SJÁLFSÖGÐU sungið í karókí.... (styttist alltaf í að við meikum það!)
Barþjónarnir voru ánægðir með okkur.....
.... og vildu endilega taka mynd af okkur!
Við hittum nýtt og skemmtilegt fólk.
Við reyndum að fljúga... og settum upp flugkeppni þar sem ég vann örugglega með 11 sekúndubrota mun.... þó að Hildur hafi stuðst við Fötex vængi!
Við spiluðum MIKIÐ á gítar.... og biðum alltaf eftir því að nágrannarnir færu að kvarta!!! Gengur bara betur næst
Við elduðum og borðuðum líka heilan helling af góðum mat... m.a. pönnukökur með súkkulaði og banana! namminamm... (og líka steiktan fetaost sem var eins og skósóli þegar hann kólnaði... að Hildar sögn)
Jebbs, skemmtileg helgi og HILDUR!! ef það eru einhverjar myndir sem þú vilt ekki hafa hérna þá verðuru að láta mig vita asap!
Bloggar | 18.5.2008 | 18:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Ég er búin að njóta þess í botn að búa í Danmörku síðustu daga. Þetta var 4 dagurinn í röð sem ég ligg úti í sólbaði og les skólabækurnar.
Veðrið er búið að vera æði og lítur spáin vel út fyrir næstu daga, vei vei!!
Þetta var útsýnið sem ég hafði í dag í garðinum:
En líffræðingurinn í mér skaut alltí einu upp kollinum í dag þegar ég var að rölta heim úr garðinum. Því þá sá ég þetta litla krútt....
Ótrúlegt en satt þá hef ég aldrei áævinni séð leðurblöku áður þó ég hafi séð heilan helling af mismunandi dýrum.
Þetta litla krútt var ennþá lifandi en lá þarna eins og skata (haha!) en kvæsti svo bara á mig þegar ég reyndi að pota í það...
Mig langaði mikið að taka hana með mér heim en hún virtist ekkert vera sátt við að ég væri að trufla miðdegislundinn hennar, þannig ég sleppti því!
Ég verð að viðurkenna að ég var soldið hrædd við þetta litla kríli... þegar hún hreyfði sig hrökk ég við og þess vegna hreyfist myndin svona mikið, hehe!!
Bloggar | 6.5.2008 | 13:40 (breytt kl. 14:07) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
| Feb. 2010 | ||||||
| S | M | Þ | M | F | F | L |
|---|---|---|---|---|---|---|
| 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | |
| 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
| 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
| 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
| 28 | ||||||
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.2.): 0
- Sl. sólarhring: 0
- Sl. viku: 0
- Frá upphafi: 7129
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 0
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar






